Bjork - Vokuro

 (versiyon 1)
Metin boyutu: ( + Büyült ) ( - Küçült)   
Bærinn minn

bærinn minn og þinn

sefur sæll í kyrrð

fellur mjöll

hljótt í húmi á jörð

grasið mitt

grasið mitt og þitt

geymir mold til vors



Hjúfrar lind

leynt við brekkurót

vakir eins og við

lífi trútt

kyrrlátt kalda vermsl

augum djúps

útí himinfyrrð

starir stillt um nótt



Langt í burt

vakir veröld stór

grimmum töfrum tryllt

eirðarlaus

óttast nótt og dag

augu þín

óttalaus og hrein

brosa við mér björt



Vonin mín

blessað brosið þitt

vekur ljóð úr værð

hvílist jörð

hljóð í örmum snæs

liljuhvít

lokar augum blám

litla stúlkan mín







Bu döküman AkorMerkezi.com'da yayınlanmıştır. http://www.akormerkezi.com


İçerik Kısa Linki:


Beğendiniz mi? Vokuro Sözleri sayfasını Şimdi paylaşın: