Emiliana Torrini - Tvaer Stjã¶rnur

 (versiyon 1)
Metin boyutu: ( + Büyült ) ( - Küçült)   
Tíminn flýgur áfram

Og hann teymir mig á eftir sér

Og ekki fæ ég miklu ráðið

Um það hvert hann fer



En ég vona bara hann hugsi

Soldið hlýlega til mín

Og leiði mig á endanum

Aftur upp til þín



Ég gaf þér forðum keðju

úr gulli um hálsinn þinn

Svo gleymdir þú mér ekki

í dagsins amstri nokkurt sinn



í augunum þínum svörtu

horfði ég á sjálfan mig um hríð

og ég vonaði að

ég fengi bara

að vera þar alla tíð



Það er margt sem angrar

en ekki er það þó biðin

því ég sé það fyrst á rykinu

hve langur tími er liðinn



og ég skrifa þar eitthvað með fingrinum

sem skiptir öllu máli

því að nóttin mín

er dimm og ein

og dagurrin á báli



Já og andlitið þitt málað

hve ég man það alltaf skýrt

augnlínur og bleikar varir brosið svo hýrt



jú ég veit vel að ókeypis

er allt það sem er best

en svo þarf ég

að greiða dýru

verði það sem er vest



Ég sakna þín í birtingu

að hafa þig ekki við hlið mér



og ég sakna þín á daginn

þegar sólin brosir við mér



og ég sakna þín á kvöldin

þegar dimman dettur á



en ég sakna þín mest á nóttinni

er svipirnir fara á stjá



Svo lít ég upp og sé

við erum saman þarna tvær

stjörnur á blárri festingunni

sem færast nær og nær



ég man þig þegar augun mín

eru opin hverja stund

en þegar ég

nú legg þau aftur

fer ég á þinn fund







Bu döküman AkorMerkezi.com'da yayınlanmıştır. http://www.akormerkezi.com


İçerik Kısa Linki:


Beğendiniz mi? Tvaer Stjã¶rnur Sözleri sayfasını Şimdi paylaşın: